14.01.2019
Rétt í þessu var að ljúka fyrsta leik íslenska U20 ára landsliðs Íslands í karlaflokki á heimsmeistaramótinu sem hófst í Laugardalnum í dag. Íslenska liðið bar þar sigurorð af Áströlum eftir gríðarlega jafnan leik og hvar úrslit réðust ekki fyrr enn í bráðabana.
Fyrsta mark Íslands kom á 11. mínútu þegar Styrmir Maack nýtti sér liðsmuninn eftir að einum Ástralanum hafði verið vikið af leikvelli. Stoðsendingarnar áttu þeir Kristján Árnason og Gunnar Arason.
08.01.2019
HM U20 verður haldið í Skautahöllinni í Laugardal, 14.-20. janúar 2019. Skyldumæting yngri iðkennda - íshokkíveisla framundan.
31.12.2018
Það er óhætt að segja að undanfarið ár hafi töluvert á dagana drifið hjá íshokkí hreyfingunni. Þrátt fyrir ýmiss erfið mál einsog lyfjamál, agamál og önnur mál sem má telja miður að rati á síður blaðanna og yfirtók nærri því alla jákvæða og góða umræðu um íshokkí þá hefur okkur samt sem áður náð að halda góðum sjó sem íþróttahreyfing.
18.12.2018
Kvennalið SA hefur haft einstaka yfirburði hér á landi og hafa landað íslandsmeistaratitli óslitið síðan 2006. Liðið er að mestu skipað landsliðsleikmönnum á aldrinum 16-38 ára og er því gríðar sterkt í ár sem og síðustu ár. Áskorun hefur ekki verið nægileg í deildinni hér á landi og freistar það því gæfunnar á erlendri grundu til að sjá hvar það stendur miðað við önnur lið á norðurlöndunum.
16.12.2018
Landslið U20 tekur þátt í heimsmeistaramóti U20 sem haldið verður í Skautahöllinni í Laugardal 14. - 20. janúar 2019. Landslið Íslands hefur verið valið.
14.12.2018
Jóhann Már Leifsson hefur verið valinn íshokkímaður ársins 2018 af stjórn Íshokkísambands Íslands.
Jóhann Már hefur um árabil leikið með meistaraflokki Skautafélags Akureyrar með frábærum árangri og margsinnis hampað Íslands- og deildar- og bikarmeistaratitli. Hlutverk hans með landsliðinu hefur vaxið jafnt og þétt og er hann nú lykilmaður í liðinu.
Jóhann Már er þekktur fyrir baráttu sína og vinnusemi inn á ísnum ásamt því að vera góður liðsfélagi og ávallt tilbúinn til að taka þátt í landsliðsverkefnum og er til fyrirmyndar í alla staði.
Íshokkísamband Íslands óskar Jóhanni Má innilega til hamingju með árangurinn.
14.12.2018
Silvía Rán Björgvinsdóttir hefur verið valin íshokkíkona ársins 2018 af stjórn Íshokkísambands Íslands.
Silvía Rán Björgvinsdóttir er vel að þessu komin enda frábær leikmaður í alla staði. Hún spilar með Skautafélagi Akureyrar í Íslandsmóti kvenna og U20 í karlaflokki, hún hefur um árabil spilað með landsliði Íslands í íshokkí og tekið þátt í nokkrum heimsmeistaramótum og verið gríðarlega mikilvægur leikmaður fyrir landsliðið frá 16 ára aldri.
Íshokkísamband Íslands óskar Silvíu Rán innilega til hamingju með árangurinn. Silvía Rán er fyrirmynd margra ungra leikmanna og er íshokkíhreyfingunni á Íslandi til mikils sóma.
11.12.2018
Nú er einfalt að versla jólagjöfina í ár. Aðgöngumiði að heimsmeistaramóti U20 sem verður í Skautahöllinni í Laugardal.
10.12.2018
Fjölnir-Björninn hefur óskað eftir félagsskiptum fyrir Hilmar Benedikt Sverrisson frá Danmörku.
Danska sambandið hefur samþykkt félagsskiptin, félagaskiptagjald hefur verið greitt og leikheimild gefin hér út.