Vladimir Kolek og Sami Lehtinen landsliðsþjálfarar karla í íshokkí hafa valið lokahóp landslið karla sem tekur þátt í undankeppni Olympíuleikanna 2022 í Rúmeníu 12. - 15. desember 2019.
Þátttökuþjóðir auk Íslands eru Rúmenía, Ísrael og Kirgistan. Sigurvegarar úr þessum riðli munu svo taka þátt í þriðju umferð undankeppninnar í febrúar 2020.
Fyrsti leikur Íslands er á móti Kirgistan, kl 13 fimmtudaginn 12. desember, annar leikur Íslands er á móti Ísrael, kl 13 föstudaginn 13. desember og svo er lokaleikurinn á móti Rúmeníu kl 17 þann 15. desember.
Allir leikir undankeppninnar verða í beinni útsendingu á streymisrás alþjóða íshokkísambandsins og má finna allar upplýsingar um liðin og keppnina hér.
Landslið Íslands - undankeppni Ólympíuleikanna 2022
Ingvar Jónsson er fyrirliði, Robbie Sigurdsson og Róbert Freyr Pálsson aðstoðarfyrirliðar.
Liðsstjóri Sigurður Sveinn Sigurðsson
Tækjastjóri Leifur Ólafsson
Sjúkraþjálfari Emanuel Sanfilippo