26.11.2018
Helgi Páll Þórisson, Viðar Garðarsson og Jón Heiðar Rúnarsson hafa tekið að sér leikja- og dómaraeftirlit í leikjum Hertz-deildar karla og kvenna og svo einnig U20. Verður þessu fyrirkomulagi beitt í flestum leikjum í vetur og verkefnið svo þróað frekar í framhaldinu.
-
23.11.2018
Alexander Medvedev og Miloslav Racansky landsliðsþjálfarar U18 hafa valið landsliðsæfingahópinn sem mun koma saman á landsliðsæfingu 7.-9. desember næstkomandi í Skautahöllinni í Laugardal.
23.11.2018
Um helgina fara fram tveir leikir í Íslandsmóti U20. Skautafélag Akureyrar (SA) kemur til Reykjavíkur og heimsækir Skautafélag Reykjavíkur (SR) í kvöld, föstudagskvöld 23. nóvember og hefst leikur kl 19:45. Á laugardag er svo leikur í Egilshöll þegar Fjölnir-Björninn tekur á móti SA og hefst leikur einnig kl 19:45.
20.11.2018
Nýverið var gengið frá samningi Íshokkísambands Íslands og Afrekssjóðs ÍSÍ vegna styrkveitinga ársins 2018.
Íshokkísamband Íslands (ÍHÍ) flokkast sem B/Alþjóðlegt sérsamband samkvæmt flokkun Afrekssjóðs ÍSÍ fyrir árið 2018. Heildarstyrkveiting sjóðsins til ÍHÍ vegna verkefna ársins er 9.200.000 kr. og er töluverð hækkun á styrkupphæð frá síðustu árum þar sem verkefni ÍHÍ árið 2017 hlutu styrk að upphæð 4.900.000 kr.
19.11.2018
Þriðji leikur í Hertz-deild kvenna fór fram á Akureyri laugardaginn 17.nóvember og vann Skautafélag Akureyrar sannfærandi sigur á liði Reykjavíkur, 7-0. Markmenn SA höfðu ansi lítið að gera þar sem Reykjavík átti 11 skot á mark Skautafélags Akureyrar á móti 69 skotum sem SA átti á Karítas Halldórsdóttur, sem stóð vaktina í marki Reykjavíkur. Átti hún á köflum stórleik og sýndi flott tilþrif á milli stanganna.
13.11.2018
Vladimir Kolek og Jussi Sipponen landsliðsþjálfarar karla í íshokkí hafa valið æfingahópinn sem mun koma saman á landsliðsæfingu 7. og 8. desember næstkomandi í Skautahöllinni í Laugardal.
Landslið Íslands mun taka þátt í 2019 IIHF World Championship Div II B, 21. - 27. apríl 2019.