13.04.2015
Í kvöld leikur Ísland sinn fyrsta leik á HM en leikurinn er liður í 2. deildarkeppni a-riðils en þá mætir liðið Belgum í Laugardalnum og hefst leikurinn klukkan 20.00
12.04.2015
Á morgun hefst heimsmeistramótið og með komu Björns Róberts Sigurðarsonar þá er loksins komin endanleg mynd á landsliðshópinn. Hópinn skipa 22 leikmenn þ.e. 12 framherjar, 8 varnarmenn og 2 markmenn.
Framherjar
Emil Alengard
Jón Gíslason
Robin Hedström
Björn Róbert Sigurðarson
Jóhann Már Leifsson
Egill Þormóðsson
Jónas Breki Magnússon
Brynjar Bergmann
Úlfar Andrésson
Arnþór Bjarnason
Pétur Maack
Andri Már Mikaelsson
11.04.2015
Í kvöld spilaði karlalandsliðið æfingaleik við Ástralíu sem hingað er komið til lands fyrst keppnisliða. Það er skemmst frá því að segja að liðin skildu jöfn, 2 – 2 en óhætt er að segja að liðin séu jöfn að styrkleika. Fyrsta lotan var markalaus en í 2. lotu steig íslenska liðið upp og var miklu hreyfanlegra á sama tíma og áströlsku leikmennirnir virkuðu þreyttir.
11.04.2015
Björn Róbert Sigurðarson sem spilar í hinni geysisterku NAHL deild í Bandaríkjunum er nú á heimleið eftir að lið hans, Aberdeen Wings datt út úr úrslitakeppninni þar vestra. Björn Róbert er öflugur leikmaður sem þrátt fyrir ungan aldur kemur með mikla leikreynslu
inn í liðið og mun styrkja sóknarleikinn hjá liðinu enn frekar.
10.04.2015
Á mánudaginn n.k. 13. apríl, hefst Heimsmeistaramót karla í íshokkí, 2. deild A-riðill hér í Reykjavík. Auk Íslands eru þátttökuþjóðirnar Ástralía, Belgía, Serbía, Rúmenía og Spánn. Mótið fer fram í Laugadalnum og fyrsti leikur mótsins verður á milli Spánverja og Ástrala kl. 13:00 á mánudaginn. Aðalleikur dagsins verður hins vegar formlegur opnunarleikur mótsins þegar Íslands tekur á móti Belgíu kl. 20:00. Annars er dagskráin hjá íslenska liðinu eftirfarandi:
30.03.2015
Tók því miður ekki mikið af myndum í dag en hér er smá samantekt. Vídeóin eru í fullri lengd í möppunni góðu.
Eins og þið vitið þá náðum við að landa sigri enn einu sinni með dramatískum hætti. Þessir snillingar eru ekkert að fara auðveldu leiðina að þessu.
30.03.2015
Góðan daginn héðan frá Taiwan.
Eftir erfiðan leik í gær voru strákarnir nokkuð lúnir. Enda ekki skrýtið þar sem þetta var hörkuleikur. Mexikóarnir spiluðu mun fastar en við vorum búnir að sjá þá gegn öðrum liðum. Það kom okkar strákum töluvert á óvart og varð til þess að það tók þá tíma að bregðast við.
30.03.2015
Við höldum áfram að henda hérna inn foreldradagbókinni af Facebook. Myndbönd og myndir eru svo á sínum stað einsog áður.
28.03.2015
Í dag er enginn leikur hjá okkur. En að sjálfsögðu er æfing og strákarnir mættu á svellið kl. 9:15. Fyrsta verk var að stilla sér upp fyrir ljósmyndara til þess að taka liðsmynd. Og eins og þið sjáið þá er þetta glæsilegur hópur.
28.03.2015
Við höldum bara áfram að birta facebook færslur fararstjórans þótt við séum svolítið eftirá. Það sem öllu máli skiptir er að gullið er okkar.