06.09.2017
Skautafélag Akureyrar hefur óskað eftir félagsskiptum fyrir eftirtalda leikmenn. Þessi félagsskipti eru samþykkt og hefur félagaskiptagjald verið greitt.
Jón Hlífar Aðalsteinsson
Hrund Thorlacius
Harpa María Benediktsdóttir
Jussi Sipponen
05.09.2017
Skautafélagið Björninn tók á móti Skautafélagi Reykjavíkur í kvöld í 2.fl og gerðu gestirnir sér litið fyrir og lögðu Björninn að velli í fyrsta leik tímabilsins. Loka staða 3-10 fyrir SR.
Viktor Ísak lagði grunninn að sigri SR-inga með marki á fyrstu mínútu. Sölvi Freyr skoraði fjögur mörk, Kári tvö mörk, Hákon Orri, Birkir Kári og Jóhann eitt mark hver.
Í liði Bjarnarins skoraði Oliver Ali, Maríana og Hilmar eitt mark hver.
Má sanni segja að leikurinn hafi verið hraður og skemmtilegur.
Búast má við hörkuskemmtilegum vetri þar sem allt getur gerst.
05.09.2017
Íslandsmótið i 2.fl í íshokkí hefst í kvöld, þriðjudaginn 5. september 2017, kl 19:45 í Egilshöll.
Bjarnarmenn taka á móti Skautafélagi Reykjavíkur og hefjum við hér með íshokkí tímabilið 2017/2018.
Sjáumst í kvöld í Egilshöll.
05.09.2017
Aganefnd ÍHÍ hefur verið skipuð fyrir starfsárið 2017-2018
Þórhallur Viðarsson formaður
Garðar Jóhannesson
Bjarni Baldvinsson
Til vara;
Magnús Þór Aðalsteinsson
Jóhann Björn Ævarsson
01.09.2017
Dagskrá íslandsmóta Íshokkí má finna hér til hægri á síðu ihi.is.
Hertz-deild karla hefst föstudaginn 8. september í Skautahöllinni í Laugardal þar sem SR tekur á móti UMFK Esju og hefst leikur kl 19:45.
Hertz-deild kvenna hefst Laugardaginn 9. september í Egilshöll þar sem kvennalið Reykjavíkur tekur á móti SA Ynjum og hefst leikur kl 16:30.
22.08.2017
Tvö dómaranámskeið verða haldin í september.
Í Reykjavík, 9. september, kl 9-15, Engjavegur 6 - hús ÍSÍ í Laugardal.
Á Akureyri, 16. september, kl 9-15, Skautahöllin á Akureyri.
15.08.2017
Íshokkísamband Íslands hefur látið uppfæra kynningarvef sambandsins, www.ishokki.is
Nú er um að gera að deila þessari heimasíðu okkar og þar með kynna og efla íshokkí á Íslandi. Þessi síða er upplýsingasíða fyrir foreldra sem eru að kynna sér íshokkí fyrir börnin sín í fyrsta skipti. Upplýsingar eru um þjálfara og íþróttafélögin sem eru með barna og unglingastarf í íshokkí.
09.08.2017
Jóhann Ragnarsson og Gunnlaugur Þorsteinsson úr Skautafélagi Reykjavíkur voru á dögunum í æfingabúðum í Kanada.
Um er að ræða Oshawa Super Week, austur af Toronto hjá Puck Warriors Goaltending. Æfingabúðirnar voru frá 31. júli til 4. ágúst síðastliðinn og sá sem heldur utan um þessar æfingar er Steve Schut sem margir íslendingar þekkja..
Gunnlaugr æfði skauta og kylfutækni meðan Jóhann var í markmannsþjálfun, báðir hæstánæagðir og sælir með æfingabúðirnar.
31.07.2017
Nú hafa 14 íslenskar hokkístelpur á aldrinum 13-18 ára lokið keppni á alþjóðlegu móti „Legendary Selects“ sem fram fór í Helsinki dagana 25.-29.júlí. Þessi kvennahokkílið eru svokölluð Selects lið sem eru skipuð leikmönnum sem koma frá ólíkum hokkíliðum víðsvegar að en stelpurnar eru valdar til þátttöku á mótinu.
Þátttökuliðin voru Ísland, Selects Norður Ameríka, sem er blandað lið skipað leikmönnum frá Bandaríkjunum og Kanada, Selects Finnland/Rússland og að lokum Selects Evrópa sem er blandað lið frá Evrópu en að mestu skipað leikmönnum frá Svíþjóð.
Íslenska liðið var að mestu skipað leikmönnum frá Skautafélagi Akureyrar en einnig leikmönnum frá SR og Birninum, tveir íslenskir leikmenn komu erlendis frá, frá Noregi og Kanada.
26.07.2017
Maksymilian Jan Mojzyszek, 17ára markmaður Bjarnarins fór til Ostrava- Poruba Tékklandi fyrr í sumar og var þar í þjálfun hjá Petr Mrazek sem spilar með Detroit Red Wings og landsliði Tékklands. Hér eru upplýsingar um Petr Mrazek. Í þessum æfingabúðum voru um 20 drengir, aðallega frá mið og austur evrópu. Maksimilian fór einnig í sumar til Tychy í Póllandi í íshokkí æfingabúðir.