Tveir leikir eru í dag í íshokkí.
Hertz-deild karla heldur áfram með leik Bjarnarins og Umfk Esju. Hefst leikur kl 19:45 í Egilshöll. Um er að ræða leik no 22 í mótaröðinni og er staðan í deildinni æsispennandi. Bæði lið eiga góða möguleika á að komast í úrslitakeppni og hver leikur dýrmætur. Fjölmennum í Egilshöll, sjoppan opin og fjölskylduvænn viðburður.
Á Akureyri fer fram einn 3.fl leikur, þegar SR sækir SA Jötna heim og er það leikur no 11 í mótaröðinni. Leikur hefst kl 16:30.