Fréttir

Dómaranámskeið

Nú fer að styttast í að leiktímabilið hefjist. Ýmis konar undirbúningur er í gangi og m.a. verða haldin dómaranámskeið bæði á Akureyri og í Reykjavík ef næg þátttaka fæst.

Alþjóðleg skráning dómara

hokkísamband Íslands auglýsir eftir skráningu dómara sem geta tekið að sér dómgæslu á alþjóðlegum íshokkíleikjum og mótum á vegum IIHF tímabilið 2013-2014.

Íshokkíþing

Í gær sunnudag hélt Íshokkísamband Íslands sitt 6. Íshokkíþing og fór það fram í fundarsölum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

HM-mót komandi tímabils

Á þingi Alþjóða Íshokkísambandsins sem fram fór í Stokkhólmi í liðinni viku var gengið frá hvar HM-mót sem íslensku landsliðin taka þátt í fara fram.

4. flokkur - lokastaða

Okkur gekk eitthvað erfiðlega að fá lokaniðurstöðu hjá 4. flokki en þetta hafðist þó á endanum.

HM í Zagreb - Pistill 5 - Sigur á Serbíu, 5 - 1 og bronsverðlaun um hálsinn

Íslenska karlalandsliðið í íshokkí gerði sér lítið fyrir og tryggði sér bronverðlaunin hér á HM í Zagreb með öruggum 5 – 1 sigri á Serbíu. Liðið spilaði sinn besta leik á þessu móti í kvöld og nánast lék sér að Serbunum sem áttu ekkert í öflugt lið víkinganna úr norðri. Þetta er besti árangur liðsins frá upphafi og þrátt fyrir liðið hafi í tvígang áður krækt sér í brons í 2.deild þá er þetta í fyrsta skiptið síðan fyrirkomulagi IIHF var breytt og deildinni skipt í efri og neðri deild. Ísland var hér í kvöld að ná sér í bronverðlaun í efri hluta 2. deildar og til þess að ná þeim árangri þurfti liðið að leggja að velli bæði Ástralíu og Spán í fyrsta skiptið og svo Serbíu úrslitaleik um bronsið en, liðið hafði aðeins einu sinni áður lagt lið Serba að velli og það var í fyrra.

HM í Zagreb - Pistill 4 - Sigur á Spáni, 6 - 3

Í dag var stór dagur fyrir íslenskt íshokkí þegar Ísland lagði Spán í fyrsta skiptið með sannfærandi 6 – 3 sigri hér á HM í Zagreb. Eftir að hafa fylgst með spænska liðinu hér á þessu móti þá var okkur ljóst að við ættum góða möguleika gegn þeim. Leikurinn var mjög jafn og spennandi þrátt fyrir þriggja marka mun, en leikurinn hrundi hjá þeim spænsku á lokamínútunum. Björn Sigurðsson og Orri Blöndal skoruðu sín fyrstu mörk fyrir karlalið í þessum leik og í leikslok var Ólafur Björnsson valinn besti leikmaður íslenska liðsins

HM í Zagreb - Pistill 3 - tap gegn Króatíu, 1 - 6

Þá er þriðja keppnisdegi lokið hér í Zagreb og þar biðum við lægri hlut fyrir gestgjöfunum Króötum. Það var svo sem vitað fyrir fram að það yrði við ramman reip að draga en strákarnir geta engu að síður borið höfuðuð hátt eftir leikinn því þeir börðust vel og lengst af var leikurinn í járnum. Staðan eftir 2. lotu var 1 – 0 og ekkert annað lið hér á mótinu hafði staðið eins í Króatíu. Dennis átti stórleik í markinu og varði m.a. eitt víti, sitt 5. á mótinu.

HM í Zagreb - Pistill 2 - Sigur á Ástralíu 3 - 2

Annar keppnisdagur hér í Zagreb var til muna ánægjulegri en sá fyrsti. Dagskráin var sú sama, morgunmatur kl. 9:00 og svo tók við video fundur þar sem Darren Rumble var búinn að fara nákvæmlega yfir leik gærdagsins og taka saman bæði góða og slæma spretti úr leiknum.

HM í Zagreb - Pistill 1

Nú er fyrsta keppnisdegi íslenska karlalandsliðsins í íshokkí lokið hér í höfuðborg Króatíu, Zagreb. Ferðalagið hingað gekk vel, allt gekk eins og smurð vel, allar áætlanir stóðust og allir komust á leiðarenda ásamt öllum farangri. Hér á keppnisstað er jafnframt allt eins og best verður á kosið, hótelið gott og skautahöllin við hliðina á hótelinu og veðrið leikur við okkur enda hér farið að vora, fuglarnir syngja í trjánum og hitastigið er um 20°.