31.01.2019
Landsliðsæfingahópur kvenna valinn fyrir landsliðsæfingu í Reykjavik 15. -17. febrúar 2019.
31.01.2019
Skautafélag Akureyrar heldur um helgina íshokkímót fyrir 5. 6. og 7. flokk, eða aldurshópa U12, U10 og U8. Fyrsti leikur í Frostmótinu 2019 hefst laugardaginn 2. febrúar kl 7:45 og mótinu lýkur á hádegi sunnudaginn 3. febrúar.
Nú er um að gera að fjölmenna í Skautahöllina á Akureyri og hvetja krakkana áfram á jákvæðan hátt. Tökum með okkur góða skapið og hjálpumst að að gera þetta mót skemmtilegt og búum til frábærar minningar fyrir börnin.
22.01.2019
Hertz deild karla heldur áfram eftir stutt vetrarfrí. Skautafélag Reykjavíkur tekur á móti Fjölni-Björninn og er það leikur númer 19 í mótaröðinni.
Samkvæmt frétt frá SR þá er ókeypis á leikinn, og sjoppan opin eins og hefðbundið er. Facebook síðar SR.
17.01.2019
Í dag fara fram fjórir leikir á heimsmeistaramótinu í Laugardalnum.
Kínverska Taipei - Ástralía kl 10:00
Nýja Sjáland - Suður Afríka kl. 13:30
Ísland - Tyrkland kl. 17:00
Kína - Búlgaría kl. 20:30
15.01.2019
Ísland bar sigurorð af liði kínverska Taipei í dag í öðrum leik liðsins á heimsmeistaramóti karla U20 sem fram fer í Laugardalnum. Íslenska liðið var betri aðilinn allan leikinn og vann nokkuð örugglega 4 – 0 og máttu gestirnir prísa sig sæla að munurinn varð ekki meiri.
Leikurinn var hins vegar frekar rólegur og ekki sami hraðinn og í gær. Þrátt fyrir nokkra yfirburði okkar manna var markalaust eftir fyrstu lotu og fyrsta markið leit ekki dagsins ljós fyrr enn á 5. mínútu 2. lotu þegar Axel Orongan skoraði eftir stoðsendingu frá Einari Grant. 10 mínútum síðar skoraði Gunnar Arason og jók muninn í 2 – 0 og aftur var það Einar Grant sem lagði upp markið.
14.01.2019
Rétt í þessu var að ljúka fyrsta leik íslenska U20 ára landsliðs Íslands í karlaflokki á heimsmeistaramótinu sem hófst í Laugardalnum í dag. Íslenska liðið bar þar sigurorð af Áströlum eftir gríðarlega jafnan leik og hvar úrslit réðust ekki fyrr enn í bráðabana.
Fyrsta mark Íslands kom á 11. mínútu þegar Styrmir Maack nýtti sér liðsmuninn eftir að einum Ástralanum hafði verið vikið af leikvelli. Stoðsendingarnar áttu þeir Kristján Árnason og Gunnar Arason.
08.01.2019
HM U20 verður haldið í Skautahöllinni í Laugardal, 14.-20. janúar 2019. Skyldumæting yngri iðkennda - íshokkíveisla framundan.
31.12.2018
Það er óhætt að segja að undanfarið ár hafi töluvert á dagana drifið hjá íshokkí hreyfingunni. Þrátt fyrir ýmiss erfið mál einsog lyfjamál, agamál og önnur mál sem má telja miður að rati á síður blaðanna og yfirtók nærri því alla jákvæða og góða umræðu um íshokkí þá hefur okkur samt sem áður náð að halda góðum sjó sem íþróttahreyfing.
18.12.2018
Kvennalið SA hefur haft einstaka yfirburði hér á landi og hafa landað íslandsmeistaratitli óslitið síðan 2006. Liðið er að mestu skipað landsliðsleikmönnum á aldrinum 16-38 ára og er því gríðar sterkt í ár sem og síðustu ár. Áskorun hefur ekki verið nægileg í deildinni hér á landi og freistar það því gæfunnar á erlendri grundu til að sjá hvar það stendur miðað við önnur lið á norðurlöndunum.