Heimslisti
25.05.2011
Strax eftir að Finnar höfðu tryggt sér heimsmeistaratitilinn í íshokkí
karla gaf Alþjóða íshokkísambandið (IIHF) út styrkleikalist bæði í
karla- og kvennaflokki. Íslenska karlaliðið hækkar sig um tvö sæti á
listanum og er núna í 36. sæti en kvennaliðið stendur í stað og er í 26.
sæti.