14.03.2017
Úrslit gætu ráðist í kvöld ef Ynjur halda uppteknum hætti, um að gera að fjölmenna í Skautahöllina á Akureyri og hvetja sitt lið. Sjáumst hress og kát.
13.03.2017
Magnus Blarand þjálfari A-landsliðs karla hefur valið 22 leikmenn til að taka þátt í heimsmeistaramóti í íshokkí sem fer fram í Galati, Rúmeníu 3. til 9. apríl næstkomandi.
13.03.2017
2017 IIHF ICE HOCKEY U18 WORLD CHAMPIONSHIP Div. II Group B hefst í dag með leik Ástralíu og Íslands, leikur hefst kl 13:00 á staðartíma.
Strákarnir okkar eru hressir og kátir, þrátt fyrir ýmsar hremmingar sem við þurftum að takast á við í undirbúningi liðsins. Liðið mætti til Novi Sad á fimmtudagskvöld og var áætlað að æfa stíft fram að móti. Þar sem ísvélar skautahallarinnar í Novi Sad biluðu þá var ákveðið að færa mótið til Belgrad.
11.03.2017
Í kvöld hófst úrslitaeinvígi kvenna með leik Ynja og Ásynja á Akureyri. Liðin koma bæði frá Skautafélagi Akureyrar og eru þannig saman sett að lið Ásynja er skipað leikmönnum 20 ára og eldri en lið Ynja yngri en 20 ára. Ásynjur eru ríkjandi Íslandsmeistarar auk þess sem þær tryggðu sér nýlega deildarmeistaratitilinn.
Í kvöld voru það hins vegar Ynjurnar sem voru sterkara liðið og unnu nokkuð sannfærandi 6 - 4 sigur í annars mjög fjörugum leik þar sem hart var tekist á. Næsti leikur fer fram á þriðjudaginn og hefst leikurinn kl. 19:30. Eins og gefur að skilja fer leikurinn fram í Skautahöllinni á Akureyri.
08.03.2017
Nú er komið að úrslitakeppni Hertz-deildar kvenna í íshokkí. Fyrsti leikur í úrslitakepninni hefst 11. mars, annar leikurinn verður 14. mars og svo hinn þriðji 16. mars 2017. Allir leikirnir verða leiknir í Skautahöllinni á Akureyri.
08.03.2017
Landslið Íslands U18 er á leið í 2017 IIHF ICE HOCKEY U18 WORLD CHAMPIONSHIP Div. II Group B sem haldið verður í Novi Sad Serbíu 13. til 19. mars 2017.
Landslið Íslands mun nokkra daga fyrir mót vera með landsliðsæfingar í Novi Sad og æfingaleik gegn Serbíu.
Mótherjarnir eru Ástralía, Holland, Serbía, Spánn og Belgía.