Félagaskipti fyrir Skautafélag Hafnarfjarðar

Skautafélag Hafnarfjarðar óskaði eftir félagaskiptum og leikheimildum  fyrir Pétur Andreas Maack, Egil Þormóðsson og Daníel Steinþór M. Norðdahl frá Skautafélagi Reykjavíkur (SR) áður en innlendur félagaskiptagluggi lokaði á miðnætti 30. september síðastliðinn.

SR hefur nú staðfest skuldleysi þeirra og hafa því Pétur, Egill og Daníel allir hlotið leikleyfi og teljast því löglegir leikmenn á Íslandsmótinu í íshokkí tímabilið 2024-2025 með Skautafélagi Hafnarfjarðar.