Skautafélag Hafnarfjarðar óskaði eftir félagaskiptum og leikheimildum fyrir Pétur Andreas Maack, Egil Þormóðsson og Daníel Steinþór M. Norðdahl frá Skautafélagi Reykjavíkur (SR) áður en innlendur félagaskiptagluggi lokaði á miðnætti 30. september síðastliðinn.
SR hefur nú staðfest skuldleysi þeirra og hafa því Pétur, Egill og Daníel allir hlotið leikleyfi og teljast því löglegir leikmenn á Íslandsmótinu í íshokkí tímabilið 2024-2025 með Skautafélagi Hafnarfjarðar.