01.12.2009
Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik Skautafélags Reykjavikur og Skautafélags Akureyrar í 3ja flokki kk. sem leikinn var þann 21.11.09.
Leikmaður Skautafélags Reykavíkur nr. 7 Arnar Már Magnússon hlaut stóra dóm. (5+GM) fyrir endastungu.
Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.
Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik Skautafélags Reykjavikur og Skautafélags Akureyrar í 3ja flokki kk. sem leikinn var þann 21.11.09.
Leikmaður Skautafélags Reykavíkur nr. 2 Kristinn Freyr Hermannsson hlaut stóra dóm. (5+GM) fyrir slagsmál og slæmt orðbragð.
Úrskurður: Aganefnd lýtur mjög alvarlegum augum þegar leikmaður reynir að efna til slagsmála og hefur í hótunum við aðra leikmenn. Kristinn Freyr Hermannsson hlýtur einn leik í bann. Aganefnd minnir á að vinnureglur um leikhæfi leikmannsins í öðrum flokkum, á meðan bannið er tekið út, er enn í gildi.
Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik Skautafélags Reykjavikur og Skautafélags Akureyrar í meistaraflokki kk. sem leikinn var þann 21.11.09.
Leikmaður Skautafélags Reykavíkur nr. 6 Óskar Grönholm hlaut stóra dóm. (5+GM) fyrir þriðji maður inn í slagsmál.
Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.
Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik Skautafélags Reykjavikur og Skautafélags Akureyrar í meistaraflokki kk. sem leikinn var þann 21.11.09.
Þjálfari Skautafélags Reykavíkur Richard Thatinen hlaut stóra dóm. (5+GM) fyrir slæmt orðbragð í garð dómara.
Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer Richard Tathtinen sjálfkrafa í eins leiks bann.
Fh. aganefndar.
Viðar Garðarsson, formaður