14.02.2009
Atvikaskýrsla úr leik Skautafélags Reykjavíkur og Bjarnarins leikinn þann 06.02.09. Leikmaður Skautafélags Reykjavíkur nr. 5 Steinar Páll Veigarsson hlaut brottvísun úr leiknum (Game Misconduct).
Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.
Atvikaskýrsla úr leik Skautafélags Akureyrar og Skautafélags Reykjavíkur leikinn þann 13.02.09. Leikmaður Skautafélags Reykjavíkur nr. 5 hlaut brottvísun úr leiknum (Game Misconduct).
Úrskurður: Í samræmi við reglugerð um aganefnd hefur formaður aganefndar úrskurðað leikmann nr. 5 Steinar Pál Veigarsson í leikbann í einn leik þar sem hann hefur hlotið brottvísun úr leik á tímabilinu (GM). Steinar Páll hlaut brottvísun úr leik þ. 06.02.2009.
Viðar Garðarsson
formaður aganefndar.