Útgefin leikleyfi fyrir SR

Skautafélag Reykjavíkur óskaði í vikunni eftir félagaskiptum og leikheimild  fyrir eftirfarandi erlendan leikmann. 

Lukas POLACIK, frá Slóvakíu, en hann er með ótímabundin félagaskipti til Þýskalands. 

IIHF og Þýska íshokkísambandið hafa staðfest félagaskiptin og því hefur Lukas POLACIK, hlotið leikleyfi og því telst hann löglegur leikmaður á Íslandsmótinu í íshokkí tímabilið 2024-2025 með Skautafélagi Reykjavíkur.