Meistaraflokkur kvenna hjá Skautafélagi Akureyrar eru deildarmeistarar í Hertz-deildinni 2022 eftir frækilega baráttu við Fjölni og Skautafélag Reykjavíkur.
SA tryggði sér þannig heimaleikjaréttinn í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Í öðru sæti í deildinni í vetur varð Fjölnir og munu stelpurnar í Grafarvoginum heimsækja Akureyri í fyrsta leik úrslita.
Úrslitakeppnin 2022 hefst þriðjudaginn 5. apríl kl 19:30 í Skautahöllinni á Akureyri.
Úrslitakeppnin er best-of-five eða það lið sem verður fyrra til að vinna þrjá leiki er Íslandsmeistari 2022.
Dagskrá keppninnar er hér; HYDRA.
Öllum leikjum verður streymt á ÍHÍ-TV.
Hertz-á Íslandi er aðalstyrktaraðili Íshokkísambands Íslands 2021-2022.