Úrslitakeppni karla hefst í dag með fyrsta leik í playoffs. Skautafélag Akureyrar tekur á móti Fjölni og hefst leikur kl 16 í Skautahöllinni á Akureyri. Það lið sem fyrst vinnur þrjá leiki í úrslitakeppninni verður Íslandsmeistari.
Þriðji og lokaleikur í úrslitakeppni kvenna um Íslandsmeistaratitilinn hefst kl 20:30 í kvöld í Skautahöllinni á Akureyri. SA vann fyrsta leikinn örugglega en Fjölnir vann annan leikinn í hörkuspennandi leik í Egilshöll. Allt getur gerst og keppnin hnífjöfn.
Leikirnir verða streymdir á ÍHÍ - TV.