Úrslitakeppni í meistaraflokki kvenna hefst í kvöld

Frá viðureign liðanna í vetur. Ljósm. Elvar P.
Frá viðureign liðanna í vetur. Ljósm. Elvar P.

Í kvöld kl. 19:30 hefst úrslitkeppnin í kvennaflokki þar sem SA og Björninn munu takast á um hvort liðið hreppir Íslandsmeistaratitilinn 2016.  Þessi sömu lið hafa mæst í úrslitum allar götur síðan árið 2000 og er þetta því í 17 skiptið sem keppt er um Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki.   SA tefldi fram tveimur liðum líkt og undanfarin ár og munu þau lið sameinast gegn Birninum í úrslitakeppninni.

Það lið sem verður fyrra til að vinna tvo leiki hampar titlinum en næsti leikur fer fram í Laugadalnum á miðvikudaginn næsta og sá þriðji ef til hans kemur verður á Akureyri á laugardaginn.  Það er næsta víst að hart verður barist og er allt hokkíáhugafólk eindregið hvatt til að kíkja í Skautahöllina á Akureyri í kvöld, en frítt er á leikinn.