27.02.2005
Aganefnd ÍHÍ
Símafundur haldinn föstudaginn 25. febrúar 2005.
Mættir voru: Bjarni Kr. Grímsson, Kristján Maack og Jón Heiðar Rúnarsson
Aganefnd 2005-02-25, mál 4.
Leikur Narfa og Bjarnarins í meistaraflokki karla
laugardaginn 19. febrúar 2005
Fyrir var tekin leikskýrsla úr leik Narfa og Bjarnarins í meistaraflokki karla laugardaginn 19. febrúar 2005 og atvikaskýrsla dómara úr sama leik.
Á 57. mínútu fær leikmaður Narfa nr. 6, Heiðar Gestur Smárason leikdóm (MP) fyrir að sparka (regla 535). Aðdragandi brotsins er sá að leikmaður Narfa nr. 6 lá í svellinu eftir samstuð við leikmann Bjarnarins, þegar leikmaður Bjarnarins er að skauta í burtu þá sparkar leikmaður Narfa fótunum undan honum.
Samkvæmt reglum ÍHÍ og IIHF hefur aganefnd heimild til að þyngja refsingu fyrir hvert það atvik sem að getið er í leikskýrslu og innifelur Brottvísun úr leik eða þyngri refsingu. Samkvæmt reglum skal hver leikmaður sem fær leikdóm (MP) fá eins leiks leikbann hið minnsta. Þau tilmæli hafa hinsvegar verið frá stjórn ÍHÍ að leikdómi fyrir slagsmál eða tilraun til að stofna til slagsmála fylgi tveggja leikja bann. Telur aganefndin að hér sé full ástæða til að beita þessu ákvæði.
Úrskurður Aganefndar
Leikmaður Narfa nr. 6, Heiðar Gestur Smárason er hér með úrskurðaður í tveggja leikja bann í meistaraflokki karla.
Reykjavík 25. febrúar 2005
Aganefnd ÍHÍ
Bjarni Kr. Grímsson, Kristján Maack, Jón Heiðar Rúnarsson