Aganefnd Íshokkísambands Íslands fékk 26. nóvember síðastliðin erindi frá stjórn ÍHÍ þar sem vísað var til nefndarinnar erindi sem barst frá Skautafélagi Reykjavíkur. Óskað var eftir því við aganefnd að farið yrði með málið samkvæmt 19 grein reglugerðar númer 8 um aganefnd. En þar segir.
„ Stjórn eða framkvæmdastjóra ÍHÍ er heimilt að vísa til úrskurðar aganefndar atvikum sem skaðað geta ímynd íshokkí hreyfingarinnar eða þeirra sem að taka þátt í leiknum. Slík atvik hafa þá ekki komið fram í atvikaskýrslu dómara eða eftirlitsmanns á kappleikjum en geta verið hvers kyns ósæmileg framkoma á leikstað eða á annan hátt opinberlega. Félag viðkomandi einstaklings er ábyrgt fyrir sektargreiðslu vegna viðkomandi atviks.“
Aganefnd tók málið fyrir á fundi sínum í byrjun desember og í kjölfarið var Skautafélagi Akureyrar gefin kostur á andmælum líkt og umrædd 19. grein gerir ráð fyrir.
Andmæli bárust frá Skautafélagi Akureyrar 16 desember síðastliðin. Á fundi aganefndar eftir að andmæli bárust var ákveðið að ræða við dómara leiksins til að athuga hvort þeir hefðu athugasemdir við framgang leiksins.
Það var svo af persónulegum ástæðum undirritaðs, að dregist hefur nokkuð að afgreiða málið frá nefndinni. Beðist er velvirðingar á því.
Niðurstaða Aganefndar er að ekki sé hægt að færa sönnur á það að ummæli þau sem koma fram í ákæruskjali Skautafélags Reykjavíkur skaði ímynd hreifingarinnar sem er forsenda þess að aganefnd geti beitt 19 grein reglugerðar númer 8. Málinu er því vísað frá!
Helstu rök:
Með erindi þessu fylgdi engin greinargerð eða rökstuðningur frá ÍHÍ, aðeins tilvitnun í reglugerð aganefndar sem og afrit af skrifum stjórnar Skautafélags Reykjavíkur. Stjórn ÍHÍ eða framkvæmdastjóra er skilt að skila inn greinargerð ef aganefnd á að taka fyrir mál samkvæmt 19 grein. Færa þarf rök fyrir því að umrætt atvik hafi skaðað ímynd hreyfingarinnar. Þetta var ekki gert, vegna þess að engin stjórnarmaður var vitni af því sem þarna átt sér stað. Aganefnd hefur því engar forsendur eða sannanir hlutlausra aðila sem styðja ásakanir frá Skautafélagi Reykjavíkur. Allir þeir sem gáfu sig fram sem vitni í ákærunni eru leikmenn eða starfsmenn liðs Skautafélags Reykjavíkur.
Leikmenn SA, sem og stjórnarmenn SA sem voru á svæðinu kannast ekki við umræddar líflátshótanir.
Allir þrír dómarar leiksins voru mjög nálægt leikmannabekkjunum þegar atvikið átti sér stað og því í aðstöðu til að heyra það sem fram fór á milli leikmanna, þeir töldu ekki ástæðu til að skerast í leikinn eða fjalla sérstaklega um atvikið í atvikaskýrslum dómara.
Vitnisburður af leikmannabekk Skautafélags Reykjavíkur vegur ekki þyngra en vitnisburður af leikmannabekk Skautafélags Akureyrar.
Ýmis önnur sjónarmið voru reifuð en hér hafa þau helstu verið talin upp. Nefndin var samstíga í þessari ákvörðun sinni.
F.h. Aganefndar Íshokkísambands Íslands,
Árni Geir Jónsson formaður.