Aganefnd barst erindi, ásamt vísun í upptöku af leik, frá stjórn Skautafélags Reykjavíkur þann 20. febrúar 2021 vegna atviks í leik SR og SA í mfl. karla leikinn þann 19. febrúar 2021.
Atvikið átti sér stað þegar 7 mínútur og 26 sekúndur voru eftir af þriðja leikhluta þegar leikmaður SA nr. 96 og leikmaður SR nr. 22 rekast saman.
Úrskurður; Aganefnd tók erindið fyrir á fundi sínum 20. febrúar 2021 en telur að ekki sé ástæða til að bregðast frekar við því.
F.h. aganefndar
Konráð Gylfason