Úrskurður aganefndar 15. Október 2024

Aganefndarfundur 15. október 2024 klukkan 17:00 - haldin í netheimum.
Tekin er fyrir atvikaskýrsla dómara úr leik SA jötna og SR í U18 ára aldursflokki sem leikinn var í Laugardal 12. október síðastliðinn.

Mál 1
Á 28 mínútu og 24 sekúndu fær leikmaður SA Jötna nr. 88 Gabríel Óskarsson stóra dóm (e. Major penalty) og brottvísun úr leiknum fyrir ólöglega ákeyrslu á höfuð eða háls (e. ILLEGAL CHECK TO THE HEAD OR NECK) Regla númer 48.
Úrskurður: Leikmaður SA númer 88 Gabríel Óskarsson fær einn leik í bann.
 
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið.