Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik Fjölnis/Bjarnarins og SR, mfl. frá 11. desember 2018.
Leikmaður Fjölnis nr.25 Ingþór Árnason fékk leikdóm, Game Misconduct Penalty skv. reglu 119 ii á 36:47:00.
Aganefnd hefur skoðað upptökur af atvikinu og lítur alvarlegum augum á eðli brotsins og þeim afleiðingum sem slík brot geta haft á aðra leikmenn. Hver og einn leikmaður er ávallt ábyrgur fyrir því að framkoma og hátterni geti ekki valdið öðrum tjóni. Í þessu ljósi og með tilvísun í strangari refsingar atvika telur Aganefnd hæfilegt að úrskurða eftirfarandi:
Úrskurður: Leikmaður Fjölnis nr.25 Ingþór Árnason fær refsingu tveggja leikja bann fyrir brotið.
Bannið er allsherjarbann.
F.h Aganefndar
Þórhallur Viðarsson