Undir 20 ára landslið karla valið og er á leið til Serbíu

Undir 20 ára landslið karla hefur verið  valið. Liðið heldur til keppni á heimsmeistaramót Alþjóða Íshokkísambandsins (IIHF) í sínum aldursflokki, en mótið er haldið í Belgrad í Serbíu dagana 19. til 25. janúar næstkomandi.  Aðal þjálfari liðsins er Kanadamaðurinn Sheldon Reasbeck sem er aðalþjálfari Skauttafélags Akureyrar og honum til aðstoðar er Eduard Kascak sem er leikmaður og þjálfari hjá Skautafélagið Reykjavíkur.  Tækjastjóri liðsins er Marcin Maciej Mojzyszek og Jóhann Þór Jónsson bráðatæknir sér um að öllum líði eins vel og kostur er. Fararstjóri liðsins er Sigurður Sveinn Sigurðsson margreindur landsliðsmaður, fararstjóri og formaður aðalstjórnar SA. Liðið verður í Egilshöll við æfingar fimmtudag og föstudag en heldur svo til Serbíu á laugardagsmorgun.  Leikmennirnir sem valdir voru í hópinn eru:

Þórir Hermannsson Aspar 
Sigurgeir Söruson 
Elvar Örn Skúlason 
Helgi Bjarnason 
Haukur Steinssen 
Birkir Einisson 
Ólafur Björgvinsson 
Ormur Jónsson 
Viktor Mojzyszek 
Hektor Hrólfsson 
Aron Gunnar Ingason 
Uni Blöndal 
Þorleifur Rúnar Sigvaldason 
Stefán Guðnason 
Bjarki þór Jóhannsson 
Kristján Hróar Jóhannesson 
Arnar Karvelsson 
Alex Máni Ingason 
Arnar Helgi Kristjánsson 
Haukur Freyr Karvelsson 
Bjarmi Kristjánsson 
Daníel Snær Ryan