Kostnaður við ferðina liggur fyrir

Nú liggur fyrir að kostnaður við ferð U20 ára liðsins til Ítalíu í næsta mánuði kostar hvern leikmann kr. 51.700.-  Innifalið í því er allur ferðakostnaður, farangurstryggingar auk sjúkra- og slysatrygginga, gisting og þrjár máltíðir á dag meðan á keppni stendur.

Á fundinum sem haldinn verður um næstu helgi verður útdeilt skjölum með öllum upplýsingum um ferðina, sem reyndar má flestar finna hér á síðunni.  Þá munu leikmenn einnig fá sérstakt styrktarblað sem auðveldar þeim að afla sér styrkja.  Þetta blað er þó hægt að nálgast fyrr á skrifstofu ÍHÍ vilji leikmenn hefjast handa strax í vikunni fyrir fundinn.