Skautafélagið Björninn tók á móti Skautafélagi Reykjavíkur í kvöld í 2.fl og gerðu gestirnir sér litið fyrir og lögðu Björninn að velli í fyrsta leik tímabilsins. Loka staða 3-10 fyrir SR.
Viktor Ísak lagði grunninn að sigri SR-inga með marki á fyrstu mínútu. Sölvi Freyr og Kári skoruðu þrjú mörk hvor, Jóhann tvö mörk og Birkir eitt mark.
Í liði Bjarnarins skoraði Oliver Ali, Maríana og Hilmar eitt mark hver.
Má sanni segja að leikurinn hafi verið hraður og skemmtilegur.
Búast má við hörkuskemmtilegum vetri þar sem allt getur gerst.
Íshokkísamband Íslands hvetur fólk til að mæta á leiki vetrarins og kynna sér leikina, enda ein svalasta íþróttaskemmtun sem í boði er hérlendis.
Áfram hokkí.