Frá leik liðanna í gærkvöld Mynd: Bryndís Ingibjörg Björnsdóttir
Skautafélag Reykjavíkur og Björninn léku í meistaraflokki kvenna á íslandsmótinu í íshokkí og fór leikurinn fram í Laugardalnum. Leiknum lauk með sigri Bjarnarstúlkna sem gerðu 7 mörk gegn 2 mörkum SR-kvenna. Hjá báðum liðum má sjá töluvert af nýjum nöfnum á leikmannalistum og eru sumar þeirra strax farin að láta að sér kveðaen bææði lið spiluðu á öllum sínum mannskap.
Bjarnarkonur hófu leikinn með miklum látum og strax á fyrstu mínútunni kom Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir þeim yfir. Hanna Rut Heimisdóttir bætti síðan við öðru marki á 9. mínútu leiksins. SR-konur náðu hinsvegar að minnka muninn rúmlega mínútu síðar og þar var á ferðinni Stefanía Kristín. Staðan því 1 – 2 eftir fyrstu lotu.
Í annarri lotu bættu Bjarnarkonur við tveimur mörkum án þess að SR-konum næðu að svara fyrir sig. Bæði mörkin átti Flosrún Vaka Jóhannesdóttir og staðan því 1 – 4 Bjarnarkonum í vil eftir aðra lotu.
Bjarnarkonur áttu fyrsta markið í 3ju lotu en þar var á ferðinni Lilja María Sigfúsdóttir. SR-konur náðu hinsvegar að svara fyrir sig með marki frá Hörpu Dögg Kjartansdóttir. Síðustu tvö mörkin áttu gestirnir og aftur var það Flosrún Vaka sem skoraði.
Mörk/stoðsendingar SR:
Stefanía Kristín 1/0
Harpa Dögg Kjartansdóttir 1/0
Hákon Orri Árnason 0/1
Refsingar SR: 14 mínútur
Mörk/stoðsendingar Björninn:
Flosrún Vaka Jóhannesdóttir 4/2
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir 1/3
Lilja María Sigfúsdóttir 1/2
Hanna Rut Heimisdóttir 1/1
Sigríður Finnbogadóttir 0/1
Refsingar Björninn: 16 mínútur.