Öruggur sigur hjá U18 stúlknaliðinu okkar á Mexíkó - Umfjöllun

Aðdáendaklúbburinn Kylfan sem hefur staðið sig vel í að hvetja okkar konur til dáða í Istanbul!
Aðdáendaklúbburinn Kylfan sem hefur staðið sig vel í að hvetja okkar konur til dáða í Istanbul!

Sigurganga U18 ára stúlkna landsliðs okkar heldur áfram. Núna eiga þær eftir einn leik sem er útslitaleikur við Tyrkland um gullið. Fyrir leikinn í kvöld erum við með svolítið betra markahlutfall en það hjálpar ekkki neitt þar sem liðin bæði eru búin að vinna alla leiki sína og eins og ávalt í íshokkí er leikið þar til að búið er að knýja fram úrslit. Leikurinn í kvöld er því hreinn úrslitaleikur um gull á HM í þessum styrkleikaflokki Alþjóða Íshokkísambandsins. 

Leikurinn í gær var í raun leikur kattarins að músinni. Mexíkó sá aldrei til sólar og þær komust aldrei inn í leikinn. Stúlkurnar okkar léku eins og þær sem valdið hafa. Stýrðu leiknum algerlega frá upphafi til enda. Fjöldi skota á mark segir mikið um þá yfirburði sem mátti sjá. 
Í leiknum náðum við að skapa okkur mikið af góðum færum og náðum við 43 skotum á mark Mexíkó sem gáfu okkur 5 mörk. Þær svöruðu með 13 skotum á okkar mark sem Díana Óskarsdóttir markmaður varði öll nema eitt.  Úrslit leiksins því 5-1 fyrir okkur. 

Það var Friðrika Magnúsdóttir sem opnaði marka reikning okkar í fyrsta leikhluta eftir stoðsendingu frá Sólrúnu Össu Arnardóttur og Kolbrúnu Björnsdóttur. 18 sekúndum síðar skoraði síðan Magdalena Sulova annað mark okkar eftir stoðsendingar frá Friðriku og Sólrúnu Össu. Þar við sat eftir fyrsta leikhluta. 

Það voru ekki liðnar nema 72 sekúndur af öðrum leikhluta þegar Mexíkó setti á okkur mark. Við sem heima sátum og nöguðum neglurnar spruttum upp úr stólum og og hrópuðum „KOMA SVO STELPUR“ Ég hef á tilfinningunni að þessi litla hvatning hafi skilað sér því frá þessu augnabliki sáu sólbrúnar Mexíkóstúlkur aldrei til sólar á ný. Frábært lið okkar tók öll völd á leiknum. 

Kolbrún Björnsdóttir skoraði þriðja mark okkar eftir stoðsendingu frá Sólrúnu Össu og Aðalheiði Ragnarsdóttur. Staðan við enda annars leikhluta var því 3-1. Fjórða mark Íslands skoraði Eyrún Garðarsdóttir eftir stoðsendingu frá Kristínu Davíðsdóttur, við í yfirtölu. Fimmta og síðasta mark okkar skoraði síðan Magdalena Sulova eftir stoðsendingu frá Kolbrúnu og Friðriku, við aftur í yfirtölu. 

Ég verð hér að minnast nokkrum orðum á varnarpörin okkar,  því ekki fá þau athygli þegar við skorum mörk. En að lið eins og Mexíkó nái ekki nema 13 skotum á markið á 60 mínútum er bara stórkostleg frammistaða sem fyrst og fremst má þakka góðri varnarvinnu þar sem andstæðingunum er stýrt út í rammann og færin tekin af þeim. Heilt yfir frábær varnarleikur.  Magdalena Sulova var í leikslok valin maður leiksins. 

Það er í dag klukkan 16:00 að íslenskum tíma sem ústitaleikurinn við Tyrki fer fram. Við sendum jákvæðar og góðar kveðjur þarna suðureftir og segjum ÁFRAM ÍSLAND!!!

Mörk og stoðsendingar: Magdalena Sulova 2/0, Kolbrún Björnsdóttir 1/2, Friðrika Magnúsdóttir 1/2, Eyrún Garðarsdóttir 1/0, Sólrún Assa Arnardóttir 0/3, Kristína Davíðsdóttir 0/1, Aðalheiður Ragnarsdóttir 0/1, 

Upplýsingar úr gagnagrunni IIHF um leikinn má sjá hér