Nýjar leikheimildir fyrir Skautafélag Hafnarfjarðar

Þann 31. október síðastliðinn óskaði Skautafélag Hafnarfjarðar eftir erlendum félagaskiptum fyrir eftirtalda leikmenn

VAN HERK Braiden frá Kanada en var á tímabundnum félagaskiptum í Pólandi.  Bæði IIHF og Kanadíska og Pólska sambandið hafa samþykkt félagaskiptin á Breiden VAN HERK.

GUS Jerzy Jay frá Kanada en með ótímabundin félagaskipti til Eistlands. Bæði IIHF og Eistneska sambandið hafa samþykkt félagaskiptin á Jerzy Jay Gus 

Ofantaldir erlendir leikmenn hafa því hlotið leikleyfi og því teljast þeir löglegir leikmenn á Íslandsmótinu í íshokkí tímabilið 2024-2025 með Skautafélagi Hafnarfjarðar.