Ný leikheimild fyrir Fjölni

Fjölnir óskaði í vikunni eftir erlendum félagaskiptum og leikheimild  fyrir DUPLJAKU LIRIDON frá Tékklandi.

IIHF og Tékkneska íshokkísambandið hafa staðfest félagaskiptin og því hefur DUPLJAKU LIRIDON fengið félagaskipti til Íslands og hlotið leikleyfi. Hann telst því löglegur leikmaður á Íslandsmótinu í íshokkí tímabilið 2024-2025 með Fjölni.