Námsefni fyrir erlenda þjálfara

Erlendum þjálfurum hefur fjölgað nokkuð á Íslandi á undanförnum árum og áratugum og auðgað íslenskt íþróttastarf. Það er misjafnt eftir íþróttagreinum hversu hátt hlutfall erlendra þjálfara er, en það er ljóst að mikilvægi þeirra er mikið. Þessari fjölgun fylgja þó ákveðnar áskoranir sem felast fyrst og fremst í því að þjálfararnir öðlist þekkingu á íslensku samfélagi og á sérstöðu íslensks íþróttastarfs. Fimm stutt myndbönd hafa verið gerð, með það að markmiði að auka þekkingu erlendra þjálfara á menningu og skipulagi íþróttahreyfingarinnar.  Myndböndin eru mörg hver einnig heppileg fyrir foreldra barna af erlendu bergi, þar sem þau varpa ljósi á skipulag og starf hreyfingarinnar. 

Efnistök myndbandanna eru: 

  • Skipulag íþróttahreyfingarinnar
  • Barna- og unglingastefna ÍSÍ
  • Foreldrar barna í íþróttum,
  • Íslenska skólakerfið
  • Siðareglur, einelti, áreitni og ofbeldi

Myndböndin eru á íslensku en með enskum texta. Endilega deilið og vekið athygli erlendra þjálfara og foreldra á myndböndunum. Hlekk á myndböndin er að finna hér að neðan.

https://isi.is/fraedsla/foreign-coaches-parents/