Leikheimildir



ÍHÍ staðfestir leikheimildir fyrir eftirfarandi leikmenn og félag þeirra:

Zdenec Prochazka Skautafélag Akureyrar.
Lars Foder Skautafélag Akureyrar.
Anders Jespersen Skautafélag Akureyrar.
Daniel Kolar Björninn.
Snorri Sigurbergsson Björninn.

Leikheimildin sem gildir í 30 daga frá og með 7. september. (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF). Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 7. október 2012. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit félagaskiptanna  hafa skilað sér á alla áfangastaði. 

Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gildir leikheimildin fyrir fyrrnefnda leikmenn út keppnistímabilið. 

Björninn hefur sótt um leikheimild fyrir Hrund Thorlacius frá Skautafélagi Akureyrar. Skautafélag Akureyrar hefur staðfest skuldleysi leikmannsins. Gjald fyrir leikheimildina hefur verið greitt til Íshokkísambands Íslands og telst Hrund Thorlacius því löglegur leikmaður með Birninum.

Björninn hefur sótt um leikheimild Diljá Mjöll Hreiðarsdóttir frá Skautafélagi Skautafélagi Reykjavíkur. Skautafélag Reykjavíkur hefur staðfest skuldleysi leikmannsins. Gjald fyrir leikheimildina hefur verið greitt til Íshokkísambands Íslands og telst Diljá Mjöll Hreiðarsdóttir því löglegur leikmaður með Birninum.

HH