20.01.2006
ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmann
Fyrir Skautafélag Reykjavíkur, leikheimild til handa Rúnari F. Rúnarssyni. Rúnar hefur frá síðari hluta sept leikið með Vojens í Dönsku 1. deildinni en hefur nú ákveðið að snúa heim og leika hérlendis. Danska Íshokkísambandið og IIHF hafa bæði staðfest flutning leikmannsins og SR hefur greitt inn á reikning ÍHÍ kostnaðinn við flutninginn ásamt félagaskiptagjaldi. Það staðfestist því hér með að Rúnar F. Rúnarsson er löglegur leikmaður með Skautafélagi Reykjavíkur frá deginum í dag 20. janúar 2006 að telja.
Viðar Garðarsson
fom. ÍHÍ