|
Í morgun hélt kvennalandsliðið af stað til Miercurea Ciuc í Rúmeníu til keppni í 4. deild Heimsmeistaramótsins í íshokkí. LIðið mun alls spila fimm leiki og mótherjarnir verða Nýja Sjáland, Rúmenía, Króatía, Tyrkland og Eistland. Fyrsti leikur liðsins verður opnunarleikur mótsins á mánudaginn 26. mars gegn Nýja Sjálandi. Liðið hefur einu sinni áður tekið þátt í heimsmeistararmóti og þá í Nýja Sjálandi fyrir tveimur árum síðan. Ekki er mikið vitað um andstæðinga okkar í þessu móti en Ísland hefur spilað við Ný Sjálendinga og Rúmena áður og voru það nokkuð jafnar viðureignir. Hin liðin eru óskrifað blað og því ríkir mikil spenna fyrir komandi átökum. Leikmenn íslenska liðsins eru; Anna Sonja Ágústsdóttir Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir Guðrún Kristín Blöndal Jóhanna Sigurbjörg Ólafsdóttir Sigrún Sigmundsdóttir Jónína Margrét Guðbjartsdóttir Vigdís Aradóttir Sólveig Smáradóttir Maria Fernanda Reyes Hanna Rut Heimisdottir Bergþora Jonsdottir Flosrún Vaka Jóhannesdóttir Karítas Sif Halldórsdóttir Hranfnhildur Ýr Ólafsdottir Ingibjörg Guðríður Hjartardottir Rósa Guðjónsdóttir Sigríður Finnbogadottir Hrund E. Thorlacius Patricia Ryan Lilja Sigfúsdóttir Áfram Ísland! |