|
Richard Tahtinen þjálfari karlalandsliðs Íslands í íshokkí hefur valið hópinn sem heldur til Novi Sad í Serbíu í apríl næstkomandi. Verkefnið að þessu sinni er heimsmeistarakeppni í a-riðli 2. deildar og mótherjar okkar eru síður en svo af lakara taginu. Ásamt íslendingum og heimamönnum serbum eru í riðlinum Eistlendingar, Kínverjar, Ísrael og Norður-Kórea. Eftirtaldir leikmenn voru valdir í liðið: Markverðir Dennis Hedström SWE Ævar Þór Björnsson SR Varnarmenn Sigurdur Óli Árnason SA Orri Blöndal SA Björn Már Jakobsson SA Ingvar Þór Jónsson SA Daniel Ericsson SWE Róbert Freyr Pálsson Björninn Snorri Sigurbergsson NO Kópur Gudjónsson SA Sóknarmenn Jónas Breki Magnússon Dk Stefán Hrafnsson SA Egill Þormóðsson SR Jón B. Gíslason SA Gauti Þormóðsson SR Emil Alengard US Gunnar Gudmundsson Björninn Robin Hedström SWE Andri Már Mikaelsson SA Petur Maack SR Steinar Grettisson SA Sigurður Sigurðarsson SA Þeir sem næstir eru inn eru: Ómar Smári Skúlason SA Andri Thór Gudlaugsson SR Ragnar Kristjánsson SR Tómas Tjörvi Ómarsson SR Richard til aðstoðar á mótinu verður Johan Björnfot en þar er á ferðinni fyrrum leikmaður frá Svíþjóð með mikla og almenna reynslu úr hokkí. HH |