Landslið kvenna í íshokkí landaði bronsi í dag á heimsmeistaramótinu, 2019 IIHF Women´s World Championship IIb, sem haldið er í Brasov, Rúmeníu.
Kínverska Taipei vann okkur í dag og vann því mótið með fullu húsi stiga, Nýja Sjáland lenti í öðru sæti og stelpurnar okkar í þriðja.
Frábær árangur hjá okkar liði, sem er mjög ungt að árum og því bjartir tímar hjá þeim á komandi mótum næstu ára.
Kolbrún Garðarsdóttir var valinn besti leikmaður íslenska liðsins á mótinu og Silvía Rán Björgvinsdóttir besti framherji mótsins.
Innilega til hamingju með árangurinn og gaman að sjá fjölda foreldra og annarra stuðningsmanna á pöllunum, vel gert.