Í dag hefst Heimsmeistaramót í Íshokkí skipað drengum 18 ára og yngri, í Skautahöllinni á Akureyri. Mótið hefst í dag þann 12. mars og lýkur á laugardaginn 18. mars og auk Íslands taka þátt í mótinu, Mexíkó, Tyrkland, Ísrael, Luxemborg og Bosnía-Herzegovina.
Íslenska liðið er sterkt og á harma að hefna eftir að hafa verið hársbreidd frá því að komast upp úr riðlunum í fyrra, en þá voru þrjú lið efst og jöfn og aðeins markahlutfall réði því að Ísland sat eftir.
Dagskrá íslenska liðsins á mótinu er eftirfarandi:
Sunnudagur 12. mars Ísland – Mexíkó
Mánudagur 13. mars Ísland – Bosnía-Herzegovina
Miðvikudagur 15. mars Ísland – Tyrkland
Fimmtudagur 16. mars Ísland - Lúxemborg
Laugardagur 18. mars Ísland – Ísrael
Fyrstu fjórir leikir íslenska liðsins hefjast kl. 20:00 en lokaleikur mótsins á laugardaginn hefst kl. 18:00.
Þá er rétt að taka fram að þrír leikir eru spilaðir á dag og hefjast leikirnir kl. 13:00 en fulla dagskrá og frekar upplýsingar um mótið má sjá hér
Þetta verður sannkölluð hokkíveisla og við hvetjum fólk til að fjölmenna í Skautahöllina á Akureyri og styðja okkar menn – ÁFRAM ÍSLAND!!!!