Landslið Íslands U18 er mætt til Zagreb í Króatíu og tekur þar þátt í heimsmeistaramóti í íshokkí.
Þátttökuþjóðir auk Íslands eru Króatía, Kína, Serbía, Holland og Spánn. Riðillinn er mjög sterkur og fróðlegt verður að sjá hvernig leikir fara. Ísland tapaði fyrir Spán í fyrsta leik og einnig gegn Kína í öðrum leik.
Í dag, þriðjudaginn 27. mars fer fram leikur Íslands og Króatíu. Á morgun miðvikudag 28. mars er leikur Íslands og Serbíu og svo á lokadag mótsins 30. mars tekur Holland á móti Íslandi.
Allir leikir, streymi og aðrar upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins, ýta hér.