Félagaskipti fyrir SFH

Skautafélag Hafnarfjarðar óskaði eftir félagaskiptum fyrir Einar Guðnason frá Fjölni. 

Fjölnir hefur staðfest skuldleysi hans og því hefur Einar hlotið leikleyfi og telst því löglegur leikmaður á Íslandsmótinu í íshokkí tímabilið 2024-2025 með Skautafélagi Hafnarfjarðar.