Fyrir var tekin atvika skýrsla dómara frá leik Fjölnis og Skautafélags Akureyrar (Víkinga) í U16 aldursflokki sem leikinn var í Egilshöll laugardaginn 25. janúar síðastliðinn.
Atvikið sem fjallað er um gerist á tímanum 25:14 í öðrum leikhluta. Aganefnd hefur farið ítarlega yfir dómaraskýrslu, skoðað upptöku frá beinu streymi frá leiknum. Málsatvik eru eftirfarandi.
Leikmaður SA Víkinga númer 13 er í sókn og fer á eftir leikmanni Fjölnis upp með ramma og tæklar Fjölnismann með þeim hætti að leikmaður SA Víkinga fer með olnboga beint í höfuð andstæðings sem liggur eftir. Dómari leiksins vísaði leikmanni út úr leiknum byggt á reglu 48,3 Ólögleg ákeyrsla á höfuð eða háls (e. ILLEGAL CHECK TO THE HEAD OR NECK).
Úrskurður: Leikmaður SA Víkinga númer 13 í undir 16 ára aldursflokki, Sölvi Blöndal Sigurðarson fær eins leiks bann. Bannið er allsherjarbann.