16.02.2006
Á morgun fara þeir Helgi Páll Þórisson og Jón Heiðar Rúnarsson til Danmerkur í þeim erindagjörðum að dæma tvo leiki. Helgi verður aðaldómari og Jón línumaður. Þetta verður í fyrsta skiptið sem íslenskir dómarar láta að sé kveða á erlendri grundu og mikilvægt skref í átt að bættri þjálfun dómara. Okkar menn munu með þessu öðlast dýrmæta reynslu með því að dæma í nýju umhverfi og undir umsjón fulltrúa frá danska íshokkísambandinu.
Leikirnir sem þeir koma til með að dæma fara fram á laugardag og sunnudag. Á laugardag dæma þeir leik á milli sænska U16 liðsins Rödovre og Kristianstad en á sunnudeginum leik á milli U19 liða Hvidovre og Frederikshavn. Það mun því mikið mæða á okkar mönnum um helgina en þeir fara utan fullir sjálfstrausts.
Þessi ferð er liður í dómaraskiptakerfi á milli íslenska og danska íshokkísambandsins en síðar í vetur munu fleiri dómarar og línumenn fara til Danaveldis í sömu erindagjörðum.