Dómaranámskeið í Reykjavík sunnudaginn 29. september

Dómaranefnd íshokkísambandsins boðar til dómaranámskeiðs sunnudaginn 29. september 2024. Námskeiðið verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst klukkan 13:00. Fyrirhugað á næstu misserum er samskonar námskeið á Akureyri sem ekki er komin dagsetning á. 

Dómaranefndin  óskar eftir að fá alla sem munu dæma á yngri flokka mótum, bæði unga leikmenn og vel skautandi einstaklinga úr fullorðinsstarfi, óháð því hvort þeir séu keppendur í mótum sambandsins eða ekki á þetta námskeið.

Aðildarfélög eru hvött til þess að skrá sem flesta félagsmenn á þessi námskeið.   Hægt er að skrá sig á námskeiðið í gegnum netið hér eða skanna QR-kóðann hér að neðan til að komast beint í skráningarformið.