Dómaranámskeið á Akureyri Laugardaginn 26. október

Dómaranefnd íshokkísambandsins boðar til dómaranámskeiðs laugardaginn 26. október 2024. Námskeiðið verður haldið í Skautahöllinni á Akureyri og hefst klukkan 13:00.  

Dómaranefndin  óskar eftir að fá alla sem munu dæma á yngri flokka mótum, bæði unga leikmenn og vel skautandi einstaklinga úr fullorðinsstarfi, óháð því hvort þeir séu keppendur í mótum sambandsins eða ekki á þetta námskeið.

Félagsmenn í SA eru hvattir til þess að skrá sem flesta á þetta námskeið.   Hægt er að skrá sig á námskeiðið í gegnum netið hér eða skanna QR-kóðann hér að neðan til að komast beint í skráningarformið.