Skautafélag Akureyrar lagði á laugardagskvöld Björninn að vellí á íslandsmótinu í íshokkí karla með sex mörkum gegn þremur. Með sigirinum komust norðanmenn í þægilega stöðu á toppi deildarinnar en þeir hafa nú fjögurra stiga forskot á SR-inga sem koma næstir, en öll lið deildarinnar hafa leikið fjóra leiki.
Heimamenn í SA voru ákveðnari í sínum aðgerðum lengi vel framan af. Einum færri náðu þeir forystunni rétt um miðja lotu með marki frá Ben DiMarco en það var jafnframt eina markið sem kom í lotunni. Heimamenn gerðu síðan útum leikinn í miðlotunni með fimm mörkum í röð. Eftir að fjögur þeirra kom kornungur markmaður, Maximilian Mojzyszek, inná hjá Birninum og stóð sig með prýði sem eftir lifði leiks. Bjarnarmenn áttu síðasta orðið í lotunni og náðu að læða inn einu marki. Bjarnarmenn náðu að setja tvö mörk í fyrrihluta síðustu lotunnar og hljóp smá spenna í leikinn en lengra komust þeir ekki.
Mörk/stoðsendingar SA:
Ingþór Árnason 2/0
Jóhann Már Leifsson 1/2
Ben DiMarco 1/2
Rúnar F. Rúnarsson 1/1
Hilmar Leifsson 1/0
Sigurður Reynisson 0/1
Refsingar SA: 10 mínútur.
Mörk/stoðsendingar Björninn:
Lars Foder 1/1
Birkir Árnason 1/0
Hjalti Geir Friðriksson 1/0
Nicolas Antonoff 0/1
Refsingar Björninn: 24 mínútur.
Mynd: Elvar Freyr Pálsson
HH