Skautafélag Akureyrar og Esja munu mætast í úrslitum Íslandsmótsins og mun fyrsti leikurinn í fara fram á Akureyri í kvöld. Viðureignir liðanna hafa verið jafnar í vetur og því má reikna með skemmtilegri keppni. Það lið sem fyrst vinnur þrjá leiki hampar titlinum og leikið verður annan hvern dag þar til yfir líkur.
Einvígið hefst á Akureyri þar sem SA tryggði sér deildarmeistaratitilinn á dögunum og þar með heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni. Næsti leikur fer svo fram í Laugardalnum á sunnudaginn.
Vekjum sérstaklega athygli á beinni útsendingu í streymi frá leiknum sem er hér til hliðar. (Guli Hertz takkinn)