Úr leik SR og Bjarnarins Mynd: Sigrún Björk Reynisdóttir
Í næstu viku hefst úrslitakeppnin í meistaraflokki karla en eins og komið hefur fram áður eru það Skautafélag Reykjavíkur og Björninn sem eigast við að þessu sinni. Það lið sem á undan verður að vinna þrjá leiki hampar íslandsmeistaratitlinum.
Dagskrá keppninnar er eftirfarandi:
1. leikur þriðjudagur 6. mars í Laugardal
2. leikur fimmtudagur 8. mars í Egilshöll
3. leikur laugardagur/sunnudagur 10/11. mars í Laugardal
4. leikur þriðjudagur 13. mars í Egilshöll (ef með þarf).
5. leikur föstudagur/laugardagur 16/17 mars í Laugardal (ef með þarf).
Ekki er hægt að fastsetja dagsetningar á leik 3 og 5 fyrr en liggur fyrir hvort leikirnir verði sýndir beint í sjónvarvarpi allra landsmanna, RÚV. Gert er ráð fyrir að nákvæmar tímasetningar liggi fyrir fljótlega, þ.e klukkan hvað leikirnir hefjast.
HH