28.10.2009
Nú eru línur farnar að skýrast varðandi heimsmeistaramótið fyrir U20 karlalandsliðið, þ.e. framkvæmd mótsins. Sjö lið eru skráð til þátttöku og þau eru í styrkleikaröð:
Nýja-Sjáland
Ísland
Ástralía
Tyrkland
Búlgaría
Norður-Kórea
Kínverska-Tapei.
Þar sem liðin eru fleiri en venjulega hefur þeim verið skipt upp í tvo riðla. Þeir eru:
A riðill:
Nýja-Sjáland
Ástralía
Búlgaría
B riðill:
Ísland
Tyrkland
Norður-Kórea
Tapei.
Leikir Íslands eru á eftirfarandi dagsetningum og staðartíma:
04.01.10 kl. 16.30 Ísland – Tapei
06.01.10 kl. 16.30 Ísland – Norður-Kórea
07.01.10 kl. 20.00 Ísland – Tyrkland.
Laugardaginn 9. janúar verða spiluð undanúrslit og sunnudaginn 10. janúar verður leikið um brons og síðan silfur/gull. Að sjálfsögðu er ætlast til þess að íslenska liðið nái á toppinn og tryggi sér sæti í 2. deild árið eftir. Þjálfari liðsins er Josh Gribben og fararstjóri er Viðar Garðarsson.
Myndin er tekin þegar U18 lið íslands kleif Kínamúrinn.
HH