Fjölnir óskaði í vikunni eftir erlendum félagaskiptum og leikheimild fyrir Nikita Montvids frá Lettlandi.
IIHF og Lettneska íshokkísambandið hafa staðfest félagaskiptin og því hefur Nikita Montvids fengið félagaskipti til Íslands og hlotið leikleyfi. Hann telst því löglegur leikmaður á Íslandsmótinu í íshokkí tímabilið 2024-2025 með Fjölni.