Skautafélag Hafnarfjarðar staðfest af ÍBH

Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (IBH) samþykkti á síðasta fundi sínum inngöngu Skautafélags Hafnarfjarðar (SFH) í bandalagið. 

Þar með hefur SFH hlotið formlega inngöngu í íþróttahreyfinguna og er orðið eitt að aðildarfélögum Íshokkísambandsins. Félagið hefur einnig staðfest skráningu á keppnisliði í meistaraflokki karla á tímabilinu 2024 til 2025 sem er nýhafið. Félagið mun leika sinn fyrsta leik eða opnunarleik í Egilshöllinni 4. október næstkomandi við heimalið Fjölnis. Leikurinn hefst klukkkan 19:45

ÍHÍ býður Hafnfirðinga velkomna í íshokkífjölskylduna.