21.11.2010
Í gærkvöldið mættust á Akureyri SA-Víkingar og Skautafélag Reykjavíkur í annað sinn um helgina. Líkt og í fyrri leiknum báru Víkingar sigur úr býtum, í þetta skiptið 5 – 2. Leikurinn var þó jafnaði en tölurnar gefa til kynna, en síðasta markið var skorað í tómt mark SR á síðustu sekúndur leiksins.
Loturnar fóru 0 – 0, 2 – 0 og 3 – 2.
Hart var tekist á í leiknum en þess má geta að með honum fylgdist hinn nýráðni þjálfari karlalandsliðsins Olaf Eller og var þetta í fyrsta skiptið sem hann horfir á íslensk félagslið keppa.
Eftir þessar viðureignir er SR með 16 stig og SA-Víkingar 14 og eiga leik til góða.
Mörk og stoðsendingar:
SA-Víkingar: Stefán Hrafnsson 1/1, Ingólfur Tryggvi Elíasson 1/0, Jóhann Már Leifsson 1/0, Gunnar Darri Sigurðsson 1/0, Björn Már Jakobsson 1/0, Jón Benedikt Gíslason 0/2.
SR: Pétur Maack 1/0, Þórhallur Viðarsson 1/0, Gauti Þormóðsson 0/1.
Meðfylgjandi mynd tók Sigurgeir Haraldsson á leiknum í gær og á henni má sjá SA-Víkinginn Sigurður Sigurðsson og SR-ingana Þórhall Viðarsson, Egil Þormóðsson og Timo Koivumaki.